Já ég ætla að gera aðra tilraun til þess að blogga..
Friðjón var hérna um helgina (Fríða og Jón Hilmar). Þau voru á
ættarmóti hjá þessari hreindýraætt hans Jóns. Það var algjört æði
að fá þau. Tjaldfyllerí og ég veit ekki hvað. Ég og Fríða
kíktum til Reyðarfjarðar á Laugardaginn. Ég vildi endilega sýna
henni pleisið sem eg er að vinna við. Henni fannst þetta hreinlega
vera fangabúðir FTV búðirnar..
Við hittum Lenny (íri) og sáum
glyttu í Wade (Kanadamaður) Og Jeff (Ameríkani). Allir voru þeir
ringlaðir þegar þeir sáu Fríðu með mér.. 
Ég hélt uppá afmælið mitt þann 17 júní með æluþrif yfir
daginn og svo hörku matarboð og partý um kvöldið. Ég fékk að heyra
afmælissönginn minn á ensku, íslensku, pólsku, spænsku,
norsku og portúgölsku.
Ég fékk alveg magnaðar gjafir frá
fólki en vinsælast var að syngja afmælissönginn og gefa mér bjór.

Aggi sagðist ætla ekki að koma og kom með alveg hreint fáranlega
afsökun. En hann ætlaði að koma mér á óvart. Hann gerði það
plan að koma sér inn á búðarsvæðið, fela bílinn og bíða eftir mér í
B3 þar sem eg bý og ég alveg "Vá elskan mín".. En það gekk ekki
lengra en það að hann var stoppaður í hliðinu og ég þurfti að
sækja hann.
Alveg yndislegur þessi drengur.. Algjör mús
stundum.. 
En ég er ekki búin að fá ammógjöf frá neinum fjölskyldumeðlim..
Ekki einu sinni frá Tengdarfjölskyldu!! Jæja, ég verð víst a
díla við það að ég er orðin 19 ára og þarf engar afmælisgjafir.


Jæja, er farin að þrífa bílinn hans Agga að innan og herbergið
okkar..
Hav'de! Lilja Bjönsdóttir